Dómur hefur verið kveðinn upp í Gulaþingsrétti í Bergen í Noregi þar sem Samherji hf. var dæmdur til að greiða skaðabætur til norska ríkisins að fjárhæð 14 milljónir norskra króna eða jafnvirði  142 milljóna íslenskra króna.  Niðurstaða dómsins kom bæði forsvarsmönnum Samherja og norskum lögfræðingum félagsins mjög á óvart þar sem forsvarsmenn norsku skipasmíðastöðvarinnar voru  sýknaðir í apríl á síðasta ári í sama máli og taldi ríkissaksóknari Noregs ekki ástæðu til að áfrýja þeirri niðurstöðu.  Samherji hf. hefur í samráði við lögfræðinga sína í Noregi ákveðið að áfrýja dómnum til hæstaréttar Noregs og kemur til með að senda frá sér yfirlýsingu um málið þegar búið er að fara betur yfir niðurstöðu dómsins.

Um er að ræða mál vegna samnings Samherja hf. árið 1997 við norska
skipasmíðastöð, Th. Hellesöy Skipsbyggeri, um smíði á Vilhelm
Þorsteinssyni EA-11.  Samherji staðfesti samninginn með greiðslu
til skipasmíðastöðvarinnar í desember 1997.  Skipasmíðastöðin varð
gjaldþrota og höfðuðu stjórnvöld í Noregi mál, bæði gegn
forsvarsmönnum Hellesöy og Samherja vegna ríkisstyrks sem úthlutað
hafði verið til stöðvarinnar.

Norsk stjórnvöld kröfðust skaðabóta á þeirri forsendu, að
samningur um smíði skipsins hafi, vegna fyrirvara í
samningsviðauka, ekki tekið gildi fyrr en þremur mánuðum eftir
gerð hans og í raun ekki verið bindandi gagnvart styrkjareglum sem
þá voru í gildi.  Sýknudómur í máli ríkisins gegn forsvarsmönnum
Hellesöy byggðist hins vegar á því að þessi sami samningur hafi
verið gildur og innan þess tímaramma sem styrkjareglur leyfðu.

Forráðamenn Samherja telja að fyrirtækið hafa verið dæmt vegna
máls sem því er í raun ekki viðkomandi.  Samherji hafi hvergi
komið að málum sem vörðuðu ríkisstyrk til smíði skipsins og norski
ríkisstyrkurinn hafi ekki runnið til Samherja að einu né neinu
leyti og mun þ.a.l. áfrýja dómnum til Hæstaréttar í Noregi.