Úr hópi 462 framúrskarandi fyrirtækja er Samherji í efsta sæti. Creditinfo flokkar félögin í stór, millistór og lítil, og eru fyrirtækin í efstu 10 sætunum öll stór. Samherji hlaut Viðskiptaverðlaun Viðskiptablaðsins árið 2011.

Horft er framhjá því hvort félög séu móðurfélög eða dótturfélög. Því er bæði Icelandair Group og Icelandair ehf. á topp 10 listanum.

Afhending verðlauna fer nú fram á Hótel Nordica.

Svona lítur listinn út yfir 10 efstu fyrirtækin á lista yfir stór framúrskarandi fyrirtæki ársins

  1. Samherji hf.
  2. Síldarvinnslan hf.
  3. Medis ehf.
  4. Marel hf.
  5. Norðurál Grundartangi ehf.
  6. Icelandair Group hf.
  7. Össur hf.
  8. Icelandair ehf.
  9. Horn Fjárfestingarfélag hf.
  10. Ísfélag Vestmannaeyja hf.