Samherji og Framherji, dótturfyrirtæki hans í Færeyjum, og færeyska félagið Varðin hafa keypt eignir úr þrotabúi Faroe Seafood sem varð gjaldþrota ekki alls fyrir löngu.

Þetta kemur fram á vef Fiskifrétta en færeyski vefurinn portal.fo greinir frá.

Stofnað verður nýtt félag sem eignast sex togskip, Bak. Stelk, Heyk, Falk, Rók og Lerk og auk þess fjórar fiskvinnslustöðvar sem staðsettar eru í Runavík, á Toftum, í Vestmanna og í Vági. Samkomulag varð um að greina ekki frá kaupverði.