Fjárfestingarfélagið Kaldbakur, sem er í eigu Samherja, hefur náð samkomulagi við Landsbankann um kaup á Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri, sem auglýst var til sölu fyrir um mánuði síðan.

Kaupverðið nemur 685 milljónum króna en Kaldbakur var með hæsta tilboðið af þeim sjö sem bárust, að því er kemur fram á heimasíðu Samherja.

Landsbankahúsið er um 2.400 fermetrar að stærð. Húsið var tekið í notkun árið 1954. Fyrstu tillöguuppdrætti að húsinu gerði Guðjón Samúelsson en að honum látnum tók Bárður Ísleifsson við og gerði hann eftir það alla uppdrætti. Bárður gerði einnig teikningar að mögulegri viðbyggingu á austurhlið hússins sem ekki reis.

Eiríkur S. Jóhannsson framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Kaldbaks, segir:

„Landsbankahúsið stendur í hjarta miðbæjarins og er sögulega í stóru hlutverki. Kaldbakur vill leggja sitt að mörkum til að varðveita húsið og glæða það frekara lífi til framtíðar. Við erum vel meðvituð um upphaflega tillöguuppdrætti Guðjóns Samúelssonar sem sýna húsið bæði hærra og stærra. Við munum skoða þessi mál í framhaldinu, þannig að nýting hússins verði sem best og sómi þess og bæjarprýði verði sem mest. Okkar sannfæring er að Akureyri komi til með að vaxa og dafna á komandi árum sem miðstöð búsetu, menningar og atvinnulífs á Norðurlandi og sem helsta þéttbýli utan höfuðborgarsvæðisins. Kaupin á Landsbankahúsinu veitir Kaldbaki kærkomið tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu miðbæjarins og styrkja þannig mikilvægt hlutverk Akureyrar. Þess vegna er um að ræða góða fjárfestingu sem er jú megin ástæða þessara kaupa.“

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

„Landsbankahúsið á Akureyri er mikil bæjarprýði og það hefur reynst okkur mjög vel. Útibúið á Akureyri er ein af kjarnastarfstöðvum bankans og þar vinna nú rúmlega 30 manns. Flest vinna í útibúinu sjálfu en einnig er þar stórt þjónustuver sem þjónar viðskiptavinum á öllum landinu og þar starfa líka þrír starfsmenn Upplýsingatæknisviðs bankans í fjarvinnu. Staðreyndin er þó sú að þrátt fyrir að útibúið sé bæði stórt og öflugt, er töluvert síðan að húsið varð of stórt fyrir starfsemina. Okkur líst því vel á áform nýrra eigenda um að glæða húsið nýju lífi og möguleikarnir eru svo sannarlega til staðar. Við munum vera áfram í húsinu um tíma en erum farin að líta í kringum okkur eftir nýju húsnæði í bænum þar sem við munum áfram veita viðskiptavinum okkar á Akureyri og nágrenni framúrskarandi bankaþjónustu.“