Í gær var nótaveiðiskipið Högaberg selt aftur til fyrri eiganda, E.M. Shipping í Færeyjum. Samherji hf. nýtti sér þar með ákvæði í kaupsamningi um endursölurétt innan 3ja mánaða frá undirritun.

Högaberg veiddi um 10 þúsund tonn af loðnukvóta Samherja á nýliðinni loðnuvertíð að verðmæti nálægt 50 milljónum króna. Aflinn var framan af vertíðinni lagður upp í fiskimjölsverksmiðju Samherja í Grindavík en eftir brunann var lagt upp hjá verksmiðjum Síldarvinnslunnar hf. Skipið kom tvisvar að landi með yfir 2 þúsund tonn, sem telst vera fullfermi.

Högaberg veiddi ennfremur um 2.500 tonn af kvóta Ísfélagsins í Vestmannaeyjum og lagði þann afla upp hjá bræðslum þess.