Tap Samherja á fyrstu sex mánuðum ársins nam 485 samanborið við hagnað á 1.065 milljónir á sama tímabili í fyrra.

Rekstrarhagnaður Samherja hf. fyrir afskriftir nam 3.300 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2006 samanborið við 1.979 milljónir króna framlegð árið áður, segir í tilkynningu.

Rekstrartekjur samstæðunnar fyrstu sex mánuði ársins námu 12.484 milljónum króna, samanborið við 11.627 milljónir króna á sama tímabili fyrir ári.

Heildareignir samstæðunnar í lok júní voru bókfærðar á 40,9 milljarða króna fyrir fyrstu sex mánuði ársins, samanborið við 28,7 milljarða á sama tímabili í fyrra.