Samherji hefur óskað eftir því að fá undanþágu frá yfirtökuskyldu á Eimskip þar sem „uppi séu fordæmalausar aðstæður vegna þeirrar óvissu sem Covid-19 hafi skapað í efnahagsumhverfi Íslands,“ samkvæmt tilkynningu frá Eimskip.

Samherji Holding ehf. jók hlut sinn í Eimskip um 3,05% þann 10. mars og eignaðist þar með 30,11% hlut í fyrirtækinu sem myndaði yfirtökuskyldu. Samherji gaf þá út að ekki væri stefnt að því að afskrá félagið. Jafnframt var bent á að íslenskir lífeyrissjóðir ættu samanlagt ríflega helmingshlut í félaginu.

Sjá einnig: Samherji boðar yfirtökutilboð í Eimskip

„Á örfáum dögum hefur allt efnahagsumhverfið breyst stórlega, langt umfram það sem spár gerðu ráð fyrir. Áhrifin eru afar víðtæk og keðjuverkandi á fjármálamarkaði og á efnahagslífið í heild sinni. Við teljum ekki skynsamlegt að tilboð um yfirtöku fari fram í skugga þess mikla umróts sem nú á sér stað. Við vonum öll að aðstæður verði heppilegri fyrr en síðar. Trú okkar á framtíð Eimskips hefur ekkert breyst,“ segir Björgólfur Jóhannsson starfandi forstjóri Samherja Holding, í tilkynningu.

Málið er nú til skoðunar hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Það getur sett skilyrði fyrir undanþágunni, t.d. varðandi frest til að selja hluti sem eru umfram 30% eignarhlut og meðferð atkvæðisréttar á því tímabili.