Íslenskir aðalverktakar og Fasteignafélagið Stoðir hafa samið um að ÍAV stækki Kringluna til suðurs. Kringlan verður stækkuð um rúmlega 1.500 fermetra á tveimur hæðum. Vinna við stækkunina hefst í október og er áætlað að henni ljúki næsta vor. Verkefnastjóri er Hjalti Gylfason og byggingastjóri Halldór Gunnlaugsson.