Þingflokkum stjórnarflokkanna var greint frá því í gær, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins, að í dag verði gengið frá samningum íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um aðstoð vegna þeirra efnahagskreppu, sem lamað hefur efnahagslífið.

Sérfræðingar sænska bankans SEB segja aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að vandamálum íslenska efnahagslífsins sé fagnaðarefni.

Dow Jones fréttastofan hefur eftir greinendum bankans að sjóðurinn muni leitast við að koma sem fyrst á greiðslumiðlun við útlönd, gera umbætur á því regluverki sem bankar starfa eftir hér á landi auk þess að sem að sérfræðingar IMF munu skoða ofan í kjölinn aðdraganda efnahagskreppunnar.

Jafnframt segja sérfræðingar SEB að starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi lært af mistökum fyrri ára og því muni sjóðurinn ekki leggja of íþyngjandi kröfur á íslensk stjórnvöld gegn því að hjálp berist.