Skrifað hefur verið undir samning við Öryggismiðstöð Íslands um staðbundna öryggisgæslu í byggingum stjórnarráðs Íslands sem staðsettar eru við Arnarhól. Það var Ríkiskaup fyrir hönd Rekstrarfélags stjórnarráðsbygginga sem auglýsti eftir tilboðum en tvö tilboð bárust. Í útboðslýsingu kom fram að væntanlegur verkkaupi skuli leggja til sérþjálfaða öryggisverði sem sinna eiga öryggisgæslu í stjórnarráðsbyggingunum, en um er að ræða vöktun í húsakynnunum samkvæmt ákveðnu vaktaskipulagi.
Ætlast er til að verkkaupi muni eiga og reka þau öryggiskerfi í stjórnarráðsbyggingunum sem öryggisverðir sjá um að vakta og bregðast við boðum frá en þau öryggiskerfi sem um ræðir eru brunaviðvörunarkerfi, innbrots- og vatnsviðvörunarkerfi, myndavélakerfi og aðgangsstýrikerfi. Miðað er við að verktaki sjái um að leggja til allan mannskap og allan þann búnað sem ekki er tilgreint sérstaklega að verkkaupi leggi til og annað það sem þar til þess að sinna verkinu samkvæmt verklýsingu.
Frá undirritun samningsins á dögunum, frá vinstri Reynir S. Ólafsson framkvæmdastjóri öryggisgæslu hjá Öryggismiðstöð Íslands, Jón Snorri Snorrason forstjori Öryggismiðstöðvar Íslands, Haraldur Sverrisson skrifstofustjóri í fjármálaráðuneytinu og Öddur Magnússon sem sér um húsumsjón í fjármálaráðuneytinu.