Samkaup högnuðust um 238 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 452 milljóna króna hagnað árið á undan. Rekstartekjur námu 34 milljörðum króna árið 2019 samanborið við 27 milljarða króna 2018.

Eigið fé í lok árs nam 2,4 milljörðum króna samanborið við 2,5 milljarða króna í lok árs 2018.

Verslanir Samkaupa eru yfir 60 talsins og eru reknar undir nöfnunum Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Iceland Samkaup strax og Háskólaverslun. Framkvæmdastjóri Samkaupa er Ómar Valdimarsson.