Guðmundur Kristjánsson, forstjóri HB Granda, kallar eftir því í viðtali við Markaðinn , að íslenskar eftirlitsstofnanir fari með nærgætni og aðgát við rannsókn mála. Er hann svo beðinn um nánari útskýringar á þessu af blaðamanni og segir þá:

„Já, og ég skal taka einfalt dæmi," segir Guðmundur og vísar til frummats Samkeppniseftirlitsins frá því í sumar, en þar kom fram að það kynni að brjóta samkeppnislög að Guðmundur tók við stjórnartaumunum í HB Granda.

„Við fengum fjórar spurningar frá Samkeppniseftirlitinu og ein af þeim sneri að því að ég væri í stjórn Vinnslustöðvarinnar. Ég hafði hætt í stjórninni þremur mánuðum áður og það voru opinberar upplýsingar. Það stendur í fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra að ég sé farinn út úr stjórninni. En þrátt fyrir það var gerð athugasemd um að ég sæti í stjórn Vinnslustöðvarinnar og í framhaldi var sent bréf til stjórnarinnar og hún beðin um álit á kaupum mínum í HB Granda. Þegar það álit Vinnslustöðvarinnar kom til Samkeppnisstofnunar var það bara rógburður um mig. Maður spyr sig hvernig standi á því að opinber eftirlitsstofnun sendi svona illa undirbúna fyrirspurn og hvernig gat þessi fyrirspurn komist í gegnum innra eftirlit Samkeppniseftirlits áður en þetta bréf var sent út og það sent á fjölmiðla?" hefur Markaðurinn eftir Guðmundi.

Enginn þori að segja neitt um Samkeppniseftirlitið

Guðmundur er greinilega ekki parsáttur við Samkeppniseftirlitið og heldur áfram að gagnrýna vinnubrögð þess.

„Svo segja allir að ég megi ekkert segja um Samkeppniseftirlitið því annars fái ég bara allt eftirlitskerfið á mig. Það er eins og Samkeppniseftirlitið sé stofnun sem enginn þorir að segja neitt um. Eins og það gangi hérna á vatni og allir pissi í buxurnar ef það kemur. Ef enginn þorir að segja barninu á heimilinu til syndanna þá yfirtekur það heimilið. Þetta má ekki vera þannig að einhver kverúlant hjá eftirlitsstofnun segi: Æ, mér er illa við þennan, þetta er KR-ingur. Við skulum nota kerfið til að níðast á honum," segir Guðmundur í samtali við Markaðinn.