Avion Group er um þessar mundir að setja samkeppnisákvæði í ráðningarsamninga lykilstarfsmanna félagsins. Ákvæðin banna viðkomandi starfsmönnum að ráða sig til starfa hjá keppinautum Avion í sex til tólf mánuði eftir að þeir hætta störfum.

Þetta kemur fram í nýrri útboðs- og skráningarlýsingu félagsins. Þar kemur einnig fram að verið sé að innleiða kaupréttarsamninga við lykilstarfsmenn í viðleitni til að lágmarka áhættuna á að þeir hverfi frá félaginu.