Áfrýjunarnefnd samkeppnismála féllst ekki á þau rök Vífilfells að gosdrykkir teljist tilheyra sama markaði og til dæmis mjólkurdrykkir, safar eða aðrir óáfengir drykkir. Nefndin staðfesti niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins og er Vífilfelli gert að greiða 80 milljóna króna sekt.

Í mars síðastliðnum komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Vífilfell hefði brotið gegn bannákvæðum samkeppnislaga með því að misnota markaðsráðandi stöðu sína á gosdrykkjamarkaði. Samkeppniseftirlitið lagði 260 milljóna króna sekt á fyrirtækið, en hún var lækkuð í 80 milljónir af áfrýjunarnefnd. Um var að ræða fjölmarga samninga Vífilfells við viðskiptavini, veitingahús og verslanir, er innihéldu ólögmæt ákvæði um einkakaup, skilyrta afslætti og önnur tryggðarákvæði, að því er Samkeppniseftirlitið segir í tilkynningu.

Vífilfell skaut ákvörðuninni til áfrýjunarnefndar og krafðist að hún yrði felld úr gildi. „Gerði fyrirtækið margvíslegar athugasemdir við bæði efni ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins og málsmeðferð þess. Taldi fyrirtækið að það væri ranglega talið markaðsráðandi og samningar þess gætu ekki falið í sér brot. Þá hefði andmælaréttur fyrirtækisins verið brotin og rannsókn Samkeppniseftirlitsins verið gölluð,“ segir í tilkynningu.

Eins og áður segir féllst áfrýjunarnefnd ekki á rök Vífilfells. Nefndin staðfesti einnig þá niðurstöðu að Vífilfell hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína.

Ákvörðun um að lækka sektina úr 260 milljónum í 80 milljónir byggir meðal annars á því að „ samhengi og samræmi, eins og við getur átt, sé á milli ákvarðana sekta í samkeppnismálum. Er því sérstaklega horft til úrlausna áfrýjunarnefndar í málum sem varða misnotkun á markaðsráðandi stöðu undanfarin misseri.“