Samkeppniseftirlitið birti í dag skýrslu um viðskiptasamninga birgja og matvöruverslana og annað samstarf fyrirtækja á matvörumarkaði.

Á vef stofnunarinnar kemur fram að könnun Samkeppniseftirlitsins bendir til þess að forverðmerkingar birgja á matvörum takmarki verðsamkeppni milli matvöruverslana. Verðmunur á þessum vörum milli verslana er margfalt minni en eðlislíkra vara sem ekki eru forverðmerktar.

Þá beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til birgja og matvöruverslana að ganga úr skugga um að samningar þeirra feli ekki í sér samkeppnishindranir.

„Samkeppniseftirlitið mun fylgja því eftir að samningar feli ekki í sér brot á samkeppnislögum. Fyrirtæki sem verða uppvís að samkeppnislagabrotum mega vænta þess að þurfa að sæta viðurlögum,“ segir á vef stofnunarinnar.

Aðdragandi skýrslunnar er að Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu aflað og farið yfir fjölda viðskiptasamninga birgja og matvöruverslana og annarra endursöluaðila í því skyni að meta áhrif þeirra á samkeppni á matvörumarkaði.

Beindist gagnaöflunin að um 70 birgjum. Felur skýrslan í sér lok þeirrar athugunar. Í skýrslunni er einnig fjallað um verðlag á matvörum og hagsmunagæslu samtaka fyrirtækja á matvörumarkaði.

Skýrsluna má nálgast hér.