Samkeppniseftirlitið hefur sektað Brunavarnir Suðurnesja um 600 þúsund krónur fyrir það að raska samkeppni á markaði útkalls- og vaktþjónustu, að því er fram kemur í frétt frá Samkeppniseftirlitinu.

Árið 1994 tók samkeppnisráð ákvörðun um fjárhagslegan aðskilnað í rekstri Brunavarna Suðurnesja milli þess hluta rekstrarins sem nyti einkaleyfis eða verndar og samkeppnisreksturs.

Á árinu 2004 breyttu Brunavarnir Suðurnesja rekstri sínum og sömdu við tvö fyrirtæki, Öryggismiðstöð Íslands og Securitas, um að sinna útkallsþjónustu fyrir þau. Samhliða þessu aflögðu Brunavarnir Suðurnesja hinn fjárhagslega aðskilnað sem kveðið var á um í ofangreindri ákvörðun. Með þessu brutu Brunavarnir Suðurnesja gegn áðurnefndri ákvörðun samkeppnisráðs.

Brot Brunavarna telst einnig vera til þess fallið að raska samkeppni á markaði fyrir útkalls- og vaktþjónustu. Samkvæmt samkeppnislögum leggur Samkeppniseftirlitið sektir á fyrirtæki sem brjóta gegn ákvörðunum samkeppnisyfirvalda.