Samkeppniseftirlitið hefur í dag ógilt samruna sem felst í kaupum Veritas Capital hf. á Fastusi ehf. Veritas er móðurfélag félaga sem reka starfsemi á sviði heilbrigðisþjónustu, meðal annars Medor ehf. sem selur lækningatæki. Fastur selur einnig lækningatæki, auk rekstrarvara fyrir hótel- og veitingahúsageirann.

„Í umræddum viðskiptum felst þannig samruni milli keppinautanna Medor og Fastusar. Hefur sá samruni áhrif á markaði fyrir sölu á lækningatækjum til sjúkrahúsa og annarra aðila í heilbrigðisþjónustu. Undir hugtakið lækningatæki falla ýmis konar vélar, áhöld, efni og einota vörur sem notaðar eru m.a. við að greina, meðhöndla og lina sjúkdóma í mönnum. Nefna má sem dæmi endurlífgunartæki, myndgreiningartæki, rannsóknartæki, skurðstofutæki, sjúkrarúm og einnota nálar,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins um ógildinguna. Við samrunann verði til fyrirtæki sem öðlast markaðsráðandi stöðu í sölu á flóknum lækningatækjum.

Sameinuð hefðu fyrirtækin meira en tvöfalda hlutdeild miðað við næst stærsta keppinaut þess og nyti fjárhagslegra yfirburða, að mati eftirlitsins. „Sameinuð myndu fyrirtækin hafa afar sterka stöðu á tengdum sviðum, t.a.m. í dreifingu lyfja og annarra heilbrigðisvara en þar hefur Distica um 70% markaðshlutdeild. Einnig horfir Samkeppniseftirlitið til þess að fyrir hendi eru verulegar aðgangshindranir fyrir nýja aðila sem vilja hasla sér völl á markaði fyrir innflutning og sölu lækningatækja. Þá leiddi ítarleg rannsókn eftirlitsins til þeirrar niðurstöðu að Landspítalinn og aðrir viðskiptavinir búi ekki yfir nægjanlegum kaupendastyrk til þess að draga úr mætti hins sameinaða fyrirtækis. Samruninn er því talinn raska samkeppni með alvarlegum hætti á þýðingarmiklum markaði.“

Tillögur samrunaaðila að skilyrðum til þess að vinna gegn samkeppnishömlum þóttu ófullnægjandi.

„Það er mat Samkeppniseftirlitsins að markaðir þessa máls séu mikilvægir fyrir almenning. Þó að kaupendur vörunnar séu yfirleitt opinberir aðilar er það á endanum almenningur sem bæði nýtur heilbrigðisþjónustunnar og greiðir þann kostnað sem af hlýst með einum eða öðrum hætti. Að undanförnu hefur komið fram að tækjabúnaður Landspítalans og annarra heilbrigðisstofnana í landinu sé í mörgum tilfellum úr sér genginn vegna sparnaðar í tækjakaupum undanfarin ár, ekki síst í kjölfar efnahagshrunsins. Áætlað er að spítalinn verði að endurnýja tækjabúnað sinn umtalsvert á næstu árum auk þess sem bygging nýs Landspítala mun hafa í för með sér töluverð útgjöld á þessu sviði. Virk samkeppni í viðskiptum með lækningatæki getur því varðað hagsmuni skattborgaranna sem nema háum fjárhæðum.“