Samkeppniseftirlitið hefur tilkynnt að það ætli að hefja rannsókn á viðskiptakjörum nokkurra birgja til matvöruverslana. Um er að ræða eftirfylgni við skýrslu um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði.

Samkeppniseftirlitið hyggst rannsaka hvort mikill verðmunur í viðskiptum einstakra birgja við mismunandi verslanir hindri samkeppni og fari gegn samkeppnislögum. Í skýrslu eftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði sem kom út í janúar sl. var sýnt fram á mjög mikinn verðmun hjá einstökum birgjum eftir því hvaða verslanir eða verslanakeðjur áttu í hlut. Í skýrslunni voru leiddar að því lýkur að þessi mikli verðmunur hindraði samkeppni á dagvörumarkaði.

Samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins í dag hefur birgjum ekki tekist að sýna fram á að verðmunurinn byggist á traustri greiningu á kostnaðarlegu hagræði sem réttlæti betri kjör. Eftirlitið segir að kallað hafi verið á eftir leiðbeiningu þess um þessi efni. Af þeim sökum telji það óhjákvæmlegt að hefja umrædda rannsókn og leggja mat á hvort viðskiptakjör fari gegn ákvæðum samkeppnislaga.

Leitað hefur verið skýringa á þessum mun hjá birgjum og er ljóst að þeim hefur hingað til ekki tekist að sýna fram á að verðmunurinn byggi á traustri greiningu á kostnaðarlegu hagræði sem réttlæti betri kjör. Þvert á móti hefur verið kallað eftir leiðbeiningu Samkeppniseftirlitsins um þessi efni. Af þeim sökum telur Samkeppniseftirlitið óhjákvæmilegt að hefja umrædda rannsókn og leggja mat á hvort viðskiptakjör tiltekinna birgja fari gegn ákvæðum samkeppnislaga.