Isavia, sem ber ábyrgð á rekstri Keflavíkurflugvallar, á að tryggja  WOW air aðgang að samkeppnislega mikilvægum afgreiðslutímum fyrir flugvélar á flugvellinum.

Í ákvörðun sem Samkeppniseftirlitið birtir í dag segir að núverandi fyrirkomulag úthlutunar á afgreiðslutímum hafi leitt til þess að Icelandair, langstærsti keppinauturinn, hafi í raun haft forgang að nær öllum mikilvægustu afgreiðslutímum á flugvellinum.

Í ákvörðuninni segir að þetta eigi einnig við um úthlutun á nýjum afgreiðslutímum vegna breytinga sem leitt hafi til fjölgunar afgreiðslutíma á flugvellinum. Úthlutunarfyrirkomulag Isavia hafi því takmarkað mjög möguleika annarra flugfélaga til þess að keppa við Icelandair og þannig skaðað samkeppni á mikilvægu sviði sem er farþegaflug til og frá landinu.