Ísland hefur hrapað niður lista Alþjóðaefnahagsráðsins (World economic forum) um alþjóðalega samkeppnishæfni landa á undanförnum árum. Samkvæmt þessu eru nú 30 lönd samkeppnishæfari en Ísland en fyrir 5 árum voru aðeins 4 lönd framar Íslandi á þessu sviði.
Um þetta er fjallað í Morgunkorni Íslandsbanka en Ísland er nú í 31.sæti á þessum lista en á síðasta ári var Ísland í 26.sæti og árið 2008 í 20 sæti.
Fram kemur í Morgunkorni að árið 2005 var Ísland hinsvegar í 5.sæti á þessum lista sem tekinn er saman árlega.
Sviss er líkt og í fyrra samkeppnishæfasta land í heimi en sömu löndin og í fyrra verma 10 efstu sætin þó að röðin hafi breyst lítillega.
Þrjú af Norðurlöndunum eru í tíu efstu sætunum. Svíþjóð er í 2. sæti, Finnland í 7. sæti og Danmörk í því 10. Þá er Noregur í 14. sæti.