Samkeppnisstofnun hefur samþykkt kaup Og Vodafone á 365 ljósvakamiðlum ehf. og 365 prentmiðlum ehf. með skilyrðum sem Og Vodafone hefur fallist á. Skilyrðin eru liður í því að tryggja jafnræði aðila og gangsæi þess markaðar sem til er kominn í kjölfar samruna fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækja. Þannig er til dæmis gert ráð fyrir að 365 ljósvakamiðlar ehf. verði reknir sem sjálfstæður lögaðili segir í tilkynningu Samkeppnisstofnunar.

Eru þessi skilyrði í samræmi við þær forsendur sem lágu að baki kaupum Og Vodafone á félögunum.