Í gær undirrituðu utanríkisráðuneytið og alþjóðlegu viðskiptaráðin; Amerísk-íslenska, Bresk-íslenska, Dansk-íslenska, Fransk-íslenska, Færeysk-íslenska, Grænlensk-íslenska, Ítalsk-íslenska, Japansk-íslenska, Norsk-íslenska, Spænsk-íslenska, Sænsk-íslenska, Þýsk-íslenska og Norðurslóða viðskiptaráðið, sem starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands, samkomulag um að efla og formgera áralangt samstarf þessara aðila á sviði utanríkisviðskipta Íslands. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands.

Helstu markmiðin með samkomulaginu eru eftirfarandi:

  • að vinna sameiginlega að hagsmunum atvinnulífsins á ofangreindum mörkuðum;
  • að vinna sameiginlega að viðskiptasendinefndum á ofangreindum mörkuðum;
  • að nýskipaðir sendiherrar eigi fund með stjórn viðkomandi millilandaráðs áður en starf hefst á erlendri grundu;
  • að sendiherrar eigi árlegan fund með stjórn viðkomandi millilandaráðs;
  • að ráðherra eigi árlegan fund með formönnum allra millilandaráðanna;
  • að vinna sameiginlega að árlegri ráðstefnu undir yfirskriftinni Alþjóða viðskiptaráðsdagurinn , þar sem athygli er vakin á alþjóðlegum málefnum.

Aðilar samkomulagsins stefna ennfremur að því að efla enn frekar samskipti og samvinnu sín á milli á markaðssvæði hvers millilandaráðs, auk þess að eiga í heildarsamstarfi eins og að ofan greinir, allt með það að leiðarljósi að auka útflutningsviðskipti Íslands og gjaldeyrisöflun.

Frá því að ég tók við embætti utanríkisráðherra hef ég lagt sérstaka áherslu á að efla utanríkisviðskipti og þetta samkomulag er mér því mikið fagnaðarefni. Ég er ekki í vafa um að nánara samstarf utanríkisráðuneytisins og millilandaráðanna eigi eftir að verða íslensku atvinnulífi til verulegra hagsbóta," segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

„Það er fagnaðarefni að við formgerum loks það samstarf sem við höfum átt við utanríkisráðuneytið til fjölda ára með þessum samningi. Innan stjórna millilandaráðanna starfa yfir 130 forsvarsaðilar í fyrirtækjarekstri víðsvegar um heiminn með það að markmiði að rækta og efla milliríkjaviðskipti landsins," segir Baldvin Björn Haraldsson, formaður stjórnar millilandaráðanna.

Alþjóðaviðskipti og efling þeirra er hagsmunamál okkar allra en 13 alþjóðleg viðskiptaráð starfa innan vébanda Viðskiptaráðs Íslands og erum við stolt af aðkomu okkar og stuðningi í þessu samhengi," segir Ásta S. Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.