Stærstu lánadrottnar BNT hf. og tengdra félaga hafa gert drög að samkomulagi um að kröfuhafarnir eignist BNT, N1 hf. og Umtak fasteignafélag. Samkvæmt drögunum munu lánadrottnanir breyta stærstum hluta krafna sinna í hlutafé í N1. Skuldir samstæðunnar voru að minnsta kosti 60 milljarðar króna miðað við síðustu birtu ársreikninga félaganna. Gangi áformin eftir mun Arion banki eignast 38,9% í N1, Íslandsbanki 31,9% og skuldabréfaeigendur 21,3%. Aðrir kröfuhafar munu síðan eignast 7,9%.

Lán bæði Umtaks og BNT eru þegar fallin gjalddaga. Samkomulagsdrögin  gera ráð fyrir að skuldabréfaeigendur fái kröfur sínar gerðar upp með útgáfu hlutabréfa í N1 hf. Langtímalán félagsins verða 8,5 milljarðar eftir endurskipulagningu og hlutfall eigin fjár nálægt 50%. Skuldabréfaflokkurinn er á gjalddaga í maí næstkomandi.

Í tilkynningu segir að reiknað sé með að vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu ljúki formlega á miðju þessu ári og frestast útgáfa ársreiknings vegna rekstrarársins 2010 þar til í lok maí af þessum sökum.

Fréttatilkynning frá Einari Sveinssyni, aðaleiganda BNT-samstæðunnar:

Einar Sveinsson
Einar Sveinsson
© BIG (VB MYND/BIG)
„Frá því á miðju síðasta ári hafa stjórn og stjórnendur N1 hf., BNT hf. og Umtaks fasteignafélags hf. unnið með lánardrottnum að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna. Nú liggja fyrir drög að samkomulagi milli Arion banka hf., Íslandsbanka hf., meirihluta eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokki ESSO 0511 og N1 hf.

Samkomulagið kveður meðal annars á um að rekstur N1 hf. er yfirtekinn af lánardrottnum sem liður í uppgjöri á skuldum Umtaks fasteignafélags ehf. og BNT hf., eignarhaldsfélags. Samkvæmt samkomulagsdrögunum munu lánardrottnar jafnframt breyta umtalsverðum hluta af lánum í hlutafé og styrkja þannig efnahag N1 hf. enn frekar. Við yfirtöku rekstrar N1 hf. er ljóst að eiginfjárstaða BNT hf. og Umtaks fasteignafélags ehf. er neikvæð. Örlög þeirra félaga eru því óráðin.

Aðkomu fráfarandi eigenda að N1 má rekja til þess þegar hópur fjárfesta undir forystu Bílanausts hf. keypti Olíufélagið ehf. í febrúar 2006. Við kaupin var stofnað eignarhaldsfélagið BNT hf. sem hélt utan um eignarhlutina í Bílanausti hf. og Olíufélaginu ehf. Hluthafar BNT hf. voru á þriðja tug talsins og lögðu þeir 10,2 milljarða króna til félagsins í formi hlutafjár. Fasteignir Bílanausts hf. og Olíufélagsins ehf. voru samhliða þessu færðar yfir í sérstakt fasteignafélag ‐ Umtak fasteignafélag ehf. Í apríl 2007 voru Bílanaust hf. og Olíufélagið ehf. sameinuð í eitt félag – N1 hf. Við þá sameiningu varð til nýtt og kraftmikið verslunar‐ og þjónustufyrirtæki með yfir 600 starfsmenn og 115 þjónustustaði um allt land.

Fall fjármálakerfisins og hrun íslensku krónunnar hafði mikil áhrif á skuldastöðu N1 hf., BNT hf. og Umtaks fasteignafélags ehf. Þrátt fyrir góða rekstrarafkomu N1 hf. var ljóst að skuldir BNT hf. og Umtaks fasteignafélags ehf. væru óviðráðanlegar að óbreyttu og því óhjákvæmilegt að endurskipuleggja fjárhag félaganna. Við endurskipulagningarferlið hefur stjórn og stjórnendur N1 hf. lagt ríka áherslu á að halda farsælum rekstri N1 áfram hnökralausum og standa þannig vörð um hag starfsfólks, viðskiptavina og birgja. Með framangreindum drögum að samkomulagi er ljóst að rekstri og þjónustu N1 hf. hefur verið komið í örugga höfn.

Nú er unnið að áreiðanleikakönnun á N1 hf. sem undanfara formlegs samkomulags. Reiknað er með að vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu ljúki að fullu í sumar. Stjórn félagsins mun að ósk lánardrottna sitja áfram þar til þeirri vinnu er lokið.

F.h. stjórnar N1 hf., Einar Sveinsson, Stjórnarformaður Reykjavík 5. apríl 2011

Fréttatilkynning frá stjórn N1 hf.“