Víðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið síðdegis í dag í Rúgbrauðsgerðinni.

Þetta segir í fréttatilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Kemur fram að samkomulaginu verði fylgt eftir með mánaðarlegum skýrslum um framgang mála.

Úr fréttatilkynningu um „Beinu brautina“:

„Að mati þeirra sem undir samkomulagið rita, er það ein af nauðsynlegum forsendum nýrrar fjárfestingar í íslensku hagkerfi sem aftur leiðir af sér hagvöxt og störf.

Samkomulagið felur í sér að úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja verði hraðað verulega. Stefnt er að því að fyrir 1. júní 2011 hafi fjármálafyrirtæki lokið skoðun á fjárhagsstöðu þessara fyrirtækja og gert lífvænlegum fyrirtækjum sem eru í fjárhagsvanda tilboð um úrvinnslu skulda þeirra.

Miðað er við að heildarskuldsetning fyrirtækis að lokinni úrvinnslu fari ekki fram úr endurmetnu eigna- eða rekstrarvirði þess, hvoru sem er hærra, að viðbættu virði annarra trygginga og ábyrgða fyrir skuldum viðkomandi fyrirtækis.

Samkomulaginu verður fylgt eftir með mánaðarlegum skýrslum um framgang mála og úrbótum á úrvinnslunni, komi til hnökra eða tafa.

Lítil og meðalstór fyrirtæki eru stærsti vinnuveitandi landsins. Ríflega 90% allra íslenskra fyrirtækja eru lítil eða meðalstór og má ætla að fjöldi þeirra sé á þriðja tug þúsunda. Þessi fyrirtæki standa undir drjúgum hluta verðmæta- og atvinnusköpunar í landinu.

Samkomulagið verður kynnt stjórnendum lítilla og meðalstórra fyrirtækja á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30.

Ummæli fulltrúa aðila samkomulagsins:

„Þetta er nauðsynlegt samkomulag sem ríkisstjórnin varð að taka forystu um að yrði gert. Ég fagna því að það sé í höfn og hvet alla ábyrga aðila í íslensku atvinnulífi til að leggjast á árarnar svo sem flest atvinnufyrirtæki stígi skrefið úr skuldaflækju inn á beina braut sköpunar atvinnutækifæra og verðmæta. Ríkisstjórnin vill standa við bakið á atvinnulífinu í landinu, þetta er eitt skref af mörgum framundan.“

- Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra

„Samkomulagið er mikilvægt. Það dregur úr óvissu og er liður í að skapa skilyrði fyrir auknar fjárfestingar sem eru of litlar í dag til að viðhalda samkeppnishæfni atvinnulífsins. Sóknarfærin í atvinnulífinu og möguleikarnir til þess að bæta kjör fólks verða að koma í gegnum auknar fjárfestingar á næstu árum, fyrst og fremst í útflutningsgreinum. Þar er hægt að skapa varanleg störf, tryggja auknar útflutningstekjur, styrkari gjaldmiðil og betri lífskjör til lengri tíma.“

- Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

„Þetta samkomulag er mjög mikilvægt og ætti að hraða þeirri vinnu sem þegar er hafin í fjármálafyrirtækjum við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja. Þetta er umfangsmikið verkefni og mikill fjöldi starfsmanna fjármálafyrirtækja um land allt koma að þessari vinnu. En við teljum verkefnið vel viðráðanlegt enda mikil reynsla við úrvinnslu skuldavanda safnast upp í fjármálakerfinu á síðustu misserum.”

- Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja

„Úrlausn skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja miðar að því að gera fjölda fyrirtækja, sem búið hafa við verulega óvissu, aftur að raunverulegum þátttakendum í hagkerfinu. Þeim verður nú gert kleift að leggja í fjárfestingar, skapa störf og ráða fólk í vinnu. Þetta er líklega ein stærsta, framkvæmanlegasta efnahagsaðgerðin sem völ er á við núverandi aðstæður og líklegt að hún hafi veruleg jákvæð áhrif á umsvif í hagkerfinu og gagnist þannig bæði íslenskum heimilum og atvinnulífi.“

- Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands“

Samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja