Formenn stjórnarandstöðuflokkanna, Pírata, Bjartrar framtíðar, Samfylkingingarinnar og Vinstri grænna, kanna nú möguleikann á því að mynda meirihlutastjórn, að því gefnu að flokkarnir fá umboð til þess frá kjósendum.

Þetta kemur fram í Facebook færslu formanna eða forsvaramanna fyrrgreinda flokka. Birgitta Jónsdóttir, Óttarr Proppé, Oddný Harðardóttir og Katrín Jakobsdóttir settu inn samhljóðandi færslu. Þar kemur meðal annars fram að flokkarnir hafi náð að vinna vel saman í stjórnarandstöðu og að nú væri rétti tíminn til þess að ráðast í þau verk sem að þjóðin kalla eftir, uppbyggingu innviða og að skapa traustan og stöðugan grunn til að auka lífsgæði.

Samhljóða yfirlýsing er svohljóðandi:

Í dag hittust formenn og talsmenn Pírata, Vinstri Grænna, Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar á ný. Þessir flokkar hafa unnið vel saman í stjórnarandstöðu á þessu kjörtímabili sem er óvenju stutt vegna afhjúpana Panama-skjalanna sem sýndu tengsl ríkisstjórnarflokkanna við aflandsfélög í skattaskjólum.

Nú er rétti tíminn til að ráðast í þau verk sem þjóðin kallar eftir, uppbyggingu innviða og skapa traustan og stöðugan grunn fyrir aukin lífsgæði. Það þarf nýja forgangsröðun og sýn á samfélagið. Til að varanlegur stöðugleiki komist á, verður að ástunda ábyrga efnahagsstjórn en jafnframt vinna að félagslegum stöðugleika. Að öðrum kosti næst ekki sátt í samfélaginu að loknum kosningum. Þörf er á betri vinnubrögðum sem byggjast á fagmennsku, samvinnu og gagnsæi. Vanda þarf til verka og innleiða kerfisbreytingar skref fyrir skref.

Við höfum nú á tveimur fundum skoðað kosningaáherslur flokkanna og finnum mikinn samhljóm. Við teljum samstarf þessara flokka vera skýran valkost við núverandi stjórnarflokka sem getur skapað ný tækifæri fyrir íslenskt samfélag.

Á grundvelli þessa teljum við fulla ástæðu til að kanna möguleika á myndun meirihlutastjórnar ef þessir flokkar fá til þess umboð í komandi kosningum.