Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Peter G. MacKay varnarmálaráðherra Kanada undirrituðu í dag samkomulag um samstarf í varnarmálum.

Þetta kemur fram á vef utanríkisráðuneytisins en þar segir að samkomulagið leggi grunn að frekari samvinnu í varnarmálum milli landanna og nær meðal annars til aukins samráðs, frekari upplýsingasamskipta og menntunar og starfsþjálfunar.

Jafnframt gerir samkomulagið ráð fyrir auknu samstarfi er snýr að æfingum og heimsóknum.

Samkomulagið var undirritað til hliðar við sameiginlegan fund utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Atlantshafsbandalagsins, sem haldinn var í Brussel í dag. Frá árinu 2006 hefur Ísland gert samkomulag um samstarf í varnar- og öryggismálum við Noreg, Danmörk, Bretland og Bandaríkin.