Samningafundi um makríl milli Íslands, Færeyja, Evrópusambandsins og Noregs lauk um hádegisbil í dag. Ekki náðist niðurstaða á fundinum en aðilar telja að þokast hafi í rétta átt. Á vef atvinnuvegaráðuneytisins segir að ákveðið hafi veirð að halda viðræðum áfram í Bergen næstkomandi þriðjudag.

Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra sjávarútvegsmála, fagnar því að viðræðunum skyldi ekki hafa verið slitið án þess að niðurstaða liggi fyrir. Á meðan að samningaviðræður standi yfir sé enn von um að saman náist. Ríkjunum beri að reyna til þrautar að reyna að ná samkomulagi en það verði að byggja á vísindalegum grunni  bæði hvað varðar hæfilegar veiðar úr stofninum sem og sanngjarnri skiptingu aflahlutar milli ríkjanna.