Samninganefndir Samtaka atvinnulífsins og  Alþýðusambands Íslands setjast að samningaborðinu í dag en samningar á almennum vinnumarkaði renna út í lok mánaðar. SA segjast, á vef sínum, hafa lagt á það áherslu að gerðir verði einfaldir kjarasamningar til skamms tíma en tíminn verði notaður vel fram til næsta hausts til að búa í haginn fyrir samninga til lengri tíma sem leggi grunn að bættum lífskjörum Íslendinga og sterkari stöðu íslenskra heimila og fyrirtækja.

„Það er hægt að snúa þróuninni við og innleiða hér norrænan árangur en til að svo megi verða þurfum við að fara að fordæmi frænda okkar og leggja áherslu á verðstöðugleika  og minnka sveiflur í efnahagslífinu. Það er ekki nóg að niðurstöður kjarsamninga séu í samræmi við efnahagslegar forsendur. Fyrirtækin þurfa að sýna ábyrgð og aga hvert um sig í ákvörðunum sínum um verð og laun. Til þess að ná árangri þarf samhent átak allra; aðila vinnumarkaðar, fyrirtækjanna, Seðlabankans og stjórnvalda,“ segir SA á vef sínum.