Árni Sigfússon
Árni Sigfússon
© BIG (VB MYND/BIG)
Reykjaneshöfn og Reykjanesbær hafa náð samningum við alla kröfuhafa um endurfjármögnun á skuldum Reykjaneshafnar til langs tíma. Hafa samningar náðst við þá 19 lánveitendur sem semja þurfti við varðandi uppgjör núverandi skulda. Reykjaneshöfn bauð kröfuhöfum sínum að kaupa til uppgjörs á núverandi skuldum verðtryggð skuldabréf. Eftir endurfjármögnun munu allir kröfuhafar þannig eiga verðtryggðar kröfur sem bera 6% vexti.

Rekstraráætlun hafnarinnar sem samningar þessir byggja á er varfærin. Þá hafa tekjur hafnarinnar af álveri ekki verið settar inn og heldur ekki 900 milljón króna ríkisstyrkur til hafnarinnar, eins og fengist hefur hingað til frá ríkinu fyrir íslenskrar stórskipahafnir. Reykjanesbær er eigandi Reykjaneshafnar.

„Mikil vinna er að baki þessari lausn og því í höfn mikilvægur áfangi í að styrkja stöðu hafnarinnar og gera hana færa um að standa undir þeim miklu verkefnum sem eru framundan á næstu árum tengt hafnsækinni starfsemi í Helguvík“, segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar í tilkynningu frá bænum.