Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu dróst lítillega saman í síðustu viku eða um 8% en hafði þó aukist um 7% í vikunni þar á undan. Veltan í vikunni nam rétt rúmum 1,1 milljarði króna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá Íslands (áður Fasteignamat ríkisins).

Kaupsamningum fækkar verulega milli vikna en meðalupphæð á hvern samning hækkar verulega. Þetta er nú fimmta vikan í röð sem veltan fer yfir milljarð króna en fjögurra vikna meðalvelta er nú rétt rúmir 1,2 milljarðar króna og hefur ekki verið hærri frá því um miðjan nóvember.

Um miðjan janúar fór 12 vikna meðalvelta undir milljarð króna í fyrsta skipti í tæpan áratug og nú er 12 vikna meðalvelta um 935 milljónir króna og hefur farið hækkandi síðustu fimm vikur.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan en meðalveltan hefur minnkað um 61% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 26 í vikunni en 44 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en frá áramótum hefur 32 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Eins og áður sagði jókst meðalupphæð á hvern samning í vikunni og var 42,8 milljónir króna og hækkar um 15 milljónir milli vikna. Það er nokkuð yfir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári voru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið 31 milljón frá áramótum.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 46% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.