Skrifað hefur verið undir tvo samninga um sérstakt umferðareftirlit og sjálfvirkt hraðaeftirlit milli Ríkislögreglustjóra annars vegar og hins vegar Vegagerðarinnar og Umferðarstofu fyrir hönd samgönguráðuneytis. Samningarnir gilda í tvö ár og eru hluti af umferðaröryggisáætlun stjórnvalda. Framlag til umferðaröryggisáætlunar í ár verða alls 367 milljónir króna.

Annar samningurinn tekur til eftirlits lögreglu með ökuhraða, eftirlits með ölvunarakstri og annars hefðbundins eftirlits lögreglu með umferðinni. Koma þessi verkefni komi til viðbótar hefðbundnu eftirliti lögreglunnar.

Hinn samningurinn er um að greiða tvær stöður lögreglumanna í Stykkishólmi vegna úrvinnslu sekta úr löggæslumyndavélum vegna hraðakstursbrota.

Stærstu liðir umferðaröryggisáætlunar eru sem fyrr aðgerðir á sviði öryggis vegna og umhverfi þeirra. Verður veitt 110 milljónum króna til að eyða svartblettum í þjóðvegakerfinu, 100 milljónum til að lagfæra umhverfi vega og koma upp vegriðum og 10 milljónir fara í gerð hvíldarsvæða.

Annar stærsti liðurinn eru áðurnefndir samningar við Ríkislögreglustjóra um umferðareftirlit að upphæð 76 milljónir króna.

Alls verða lagðar 36,5 milljónir króna í áróður og fræðslu. Eru það annars vegar ýmis áróðurs- og auglýsingaverkefni og hins vegar fjárveiting til umferðarfræðslu sem Grundaskóli á Akranesi stýrir og sinnir sérstaklega í samstarfi við nokkra aðra skóla. Þá fara 12,5 milljónir króna í samstarf og þróun.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þótt umfang umferðaröryggisáætlunar sé nokkru viðaminna en ráðgert var vegna efnahagsástandsins hefur tekist að halda inni mikilvægustu verkefnunum á sviði lagfæringa á svartblettum og umferðareftirliti. Áfram eru því stigin mikilvæg skref í átt til þess að bæta umferðaröryggi í samræmið við markmið umferðaröryggisáætlunarinnar.