Samorka býður út, fyrir hönd flestra rafveitna í landinu, innkaup á ljósaperum. Um er að ræða ýmsar gerðir af perum, þó mest perur fyrir götulýsingu. Útboðið fer fram á evrópska efnahagssvæðinu og er útboðslýsingin á ensku.

Þess má geta að útboðslýsingin telur 31 blaðsíður og felur í sér margvíslega lagafyrirvara.