Aðalfundur Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á Íslandi, var haldinn á föstudag og í ályktun aðalfundarins er lýst yfir vonbrigðum með niðurstöðu Alþingis um rammaáætlun. Hún víkji í veigamiklum atriðum frá faglegri niðurstöðu verkefnisstjórnar. „Margir hagkvæmustu og best rannsökuðu orkukostirnir, sem verkefnisstjórn raðaði ofarlega út frá sjónarhorni nýtingar, höfnuðu ýmist í biðflokki eða verndarflokki. Vandséð er að sátt geti orðið um þessa niðurstöðu, að mati Samorku.“

Í ályktuninni segir einnig að miklar fjárfestingar séu framundan við flutningskerfi raforku, sem þörf sé á að efla og endurnýja. „Á sama tíma hafa komið fram kröfur um að farin verði leið jarðstrengja í stað loftlína, sem á svo hárri spennu er alla jafna miklum mun dýrari framkvæmd. Aðalfundur Samorku minnir á að verulegur kostnaður við nauðsynlega endurnýjun flutningskerfisins birtist í reikningum til heimila, fyrirtækja og stofnana. Allar ákvarðanir um að fara leiðir sem fela í sér tugi milljarða króna í viðbótarkostnað munu óumflýjanlega endurspeglast í hærri reikningum til sömu aðila,“ segir í ályktuninni.

Að lokum segir þar að hvatt sé til þess að fram fari víðtæk og opin umræða um leiðir til hámörkunar á arðsemi og verðmætasköpun af sölu endurnýjanlegrar orku. „Athygli vekur að Norðmenn telja sín tækifæri af sölu endurnýjanlegrar orku jafn verðmæt og af sölu á olíu, en hérlendis er orkugetan í endurnýjanlegri orku þreföld á hvern íbúa miðað við Noreg. Íslendingar búa því að gríðarlegum tækifærum á þessu sviði.“