Forsvarsmenn Sampo reyna nú að kveða niður orðaróma þess efnis að viðskiptavinir snúi sér annað í stórum stíl í kjölfar hruns tölvukerfis bankans.
Sampo hefur átt í talsverðum vandræðum með tölvukerfi sitt eftir að það var sameinað kerfi Danske Bank.
Hundruðir viðskiptavina bankans hafa ekki getað skráð sig inn á netbankaþjónustu Sampo eftir að kerfin voru sameinuð. Finnska dagblaðið Helsingin Sanomar skrifar í dag að hundruð manna hafi snúið sér til Sampo á undanförnum dögum í þeim tilgangi að slíta viðskiptum og snúa sér til annarra innlánastofnana.
Sampo Bank og Danske Bank hafa á sínum snærum yfir 800.000 viðskiptavini. Þó hafa aðeins þeir sem eru staðsettir í Finnlandi átt í þessum vandræðum. Forstöðumaður fjárfestatengsla Sampo staðfestir að einhver fjöldi fólks hafi yfirgefið bankann í kjölfar þessara vandræða, en það sé þó ekki í stórum mæli.