Finnska tryggingafélagið Sampo hefur aukið hlut sinn í Nordea, stærsta banka Norðurlanda. S

amkvæmt upplýsingum frá Reuters hefur Sampo aukið hlut sinn upp í 11,7%.

Sampo hefur hægt og rólega byggt upp stöðu sína undanfarin ár og flaggaði síðast þegar félagið fór í 10,9% í Nordea. Stærsti eigandi Nordea er sænska ríkið sem á 19,9% hlut.