© Aðrir ljósmyndarar (VB MYND)
Office of Fair Trading (OFT) í Bretlandi sektaði nýverið matvöruverslanir og mjólkurframleiðendur um 49,5 milljónir punda, jafnvirði um 9,3 milljarða króna á núverandi gengi, vegna samráðs. Samkeppniseftirlitið hér á landi greinir frá ákvörðun OFT á heimasíðu sinni.

OFT komst að þeirri niðurstöðu að Arla, Asda, Dairy Crest, McLelland, Safeway, Sainsbury‘s, Tesco, The Cheese Company og Wiesman hefðu gróflega brotið samkeppnislög með ólögmætu verðsamráði á ákveðnum mjólkurafurðum á árunum 2002 og 2003. Sektaði OFT því þessi fyrirtæki samtals um tæplega 50 milljónir punda. Nokkur fyrirtækjanna fengu sektir lækkaðar vegna samvinnu við rannsókn málsins.