Samkomulag hefur verið gert um breytingu á kjarasamningi SA og nokkurra aðildarfélaga BHM fyrr í dag þannig að vinnutímaákvæði hans verði aðlöguð að vinnutímaákvæðum kjarasamninga skrifstofufólks á almennum vinnumarkaði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá BHM, en þar segir að í framkvæmd hafi þessi dagvinnutími víða þegar verið samræmdur milli þeirra starfsmanna sem starfa eftir kjarasamningi þessum og þeirra sem starfa eftir kjarasamningum skrifstofufólks.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá undir lok árs 2019 náðist í kjarasamningum ríkis og BHM að stytta vinnutíma háskólafólks sem starfaði hjá ríkinu sem fjármálaráðuneytið sagði þá helstu tíðindi samkomulagsins.

Persónuleg erindi teljast ekki til vinnutíma

Vinnutímastyttingin komi jafnframt einungis til framkvæmda þar sem virkur vinnutími, það er sá tími sem starfsmaður er við störf, sé lengri en 35,5 stundir að jafnaði á viku.

Neysluhlé og önnur hlé frá vinnu vegna ýmiss konar persónulegra erinda teljist hins vegar ekki til virks vinnutíma í þessu sambandi. Vinnutímastyttingin á að koma til framkvæmda, þar sem við á, eigi síðar en 1. mars næstkomandi.

Eins og þekkt er hafa stjórnendur og sérfræðingar alla jafna töluvert svigrúm til að skipuleggja vinnutíma sinn og eru fyrst og fremst ráðnir til að sinna tilteknum verkefnum og fá fyrir það föst mánaðarlaun segir jafnframt í tilkynningunni.

Yfirvinna sé því oft innifalin í mánaðarlaunum og/eða vinnutími sveigjanlegur, en samt sem áður er tekið fram að rétt sé að samtal eigi sér stað þar sem svo háttar til um bætta nýtingu vinnutíma gegn styttri viðveru svo samræma megi betur atvinnu- og fjölskyldulíf. Frekari kynning á samningnum muni svo fara fram í þessum mánuði.

Eftirtalin sátu í viðræðunefnd félaganna:

  • Maríanna H. Helgadóttir, formaður
  • Guðfinnur Þór Newman, varaformaður
  • Júlíana Guðmundsdóttir, lögfræðingur

Með nefndinni starfaði hagfræðingur BHM, Vilhjálmur Hilmarsson.

Aðildarfélög innan BHM sem eiga aðild að þessum samningi eru:

  • Dýralæknafélag Íslands
  • Félag íslenskra félagsvísindamanna
  • Félags íslenskra náttúrufræðinga
  • Félag lífeindafræðinga
  • Félag sjúkraþjálfara
  • Félagsráðgjafafélag Íslands
  • Fræðagarður
  • Iðjuþjálfafélag Íslands
  • Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga
  • Ljósmæðrafélag Íslands
  • Sálfræðingafélag Íslands
  • Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga
  • Stéttarfélag lögfræðinga
  • Þroskaþjálfafélag Íslands