Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 101,4 stig í mars síðastliðnum og hafði þá hækkað um 0,5% frá febrúar. Á sama tíma hækkaði vísitalan fyrir Ísland um 1,1% frá fyrra mánuði og var 101,9 stig samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

Frá mars 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólga lægri á Íslandi en í öðrum EES ríkjum eða 2% samanborið við 2,1% að meðaltali í hinum EES ríkjunum og 2,2% á evrusvæðinu.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,6% í Lettlandi, 4,3% í Slóvakíu og 4,5% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 0,9% í Póllandi, 1,2% í Finnlandi og 1,3% í Austurríki.