Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 116,1 stig í október sl. og hækkaði um 0,3% frá september. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 129,5 stig, hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði. Frá október 2003 til jafnlengdar árið 2004 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 2,9% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 7,2% í Lettlandi og 6,4% í Ungverjalandi. Minnst var verðbólgan í Finnlandi, 0,6% og í Bretlandi, 1,2%.