Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum lækkaði um 0,4% frá desember til janúar, segir Hagstofa Íslands. Á sama tíma lækkaði íslenska vísitalan um 0,1%.

Frá janúar 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES, 2,4% á evrusvæðinu og 1,3% á Íslandi.

Mesta verðbólgan á Evrópska efnahagssvæðinu á tólf mánaða tímabilinu var 7,6% í Lettlandi, 4,7% í Eistlandi og 4,2% á Spáni. Minnst var verðbólgan 0,9% í Póllandi og 1,1% í Finnlandi og Svíþjóð.

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 118,5 stig en sú íslenska 131,2 stig.