Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 102,1 stig í apríl síðastliðinn og hækkaði um 0,7% frá mars, segir í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Á sama tíma var vísitalan fyrir Ísland 102,7 stig, hækkaði um 0,8% frá fyrra mánuði.

Frá apríl 2005 til jafnlengdar árið 2006 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,3% að meðaltali í ríkjum Evrópska efnahagssvæðinu, 2,4% á evrusvæðinu og 3,3% á Íslandi.

Mesta verðbólga á Evrópska efnahagssvæðinu á þessu tólf mánaða tímabili var 6,1% í Lettlandi, 4,4% í Slóvakíu og 4,3% í Eistlandi. Minnst var verðbólgan 1,2% í Póllandi og 1,5% í Finnlandi.