Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna verkfræðistofanna, VST-Rafteikningar hf., Fjarhitunar hf., Fjölhönnunar ehf. og RT ehf.

Á vef Samkeppniseftirlitsins kemur fram að athuganir Samkeppniseftirlitsins gefi ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni.

Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli samkeppnislaga.

Sjá ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. (pdf skjal)