Samruni Refresco, sem er að stórum hluta í eigu Stoða, og Gerber Emig er frágenginn. Samkomulag um fyrirhugaðan samruna, sem kynnt var í apríl, með fyrirvara um samþykki evrópskra samkeppnisyfirvalda. Það samþykki barst 4. október síðastliðnum en með skilyrði um sölu einnar verksmiðju, í Waibstadt í Þýskalandi. Hluthafar Refresco munu eiga 72,5% hlut í sameinaða félaginu og hluthafar Gerber Emig munu eiga 27,5% hlut.

Nafn hins sameinaða félags verður Refresco Gerber. Höfuðstöðvar eru í Rotterdam, Hollandi og hjá því starfa um 4,700 starfsmenn víða í Evrópu: Benelux, Frakklandi, Þýskalandi, Spáni, Ítalíu, Bretlandi, Póllandi og Finnlandi. Refresco Gerber er einn stærsti framleiðandi drykkjarvara í Evrópu og framleiðir árlega u.þ.b. 6,5 milljarða lítra af drykkjarvörum. Árleg velta Refresco Gerber er u.þ.b. 2,3 milljarðar evra, segir í tilkynningu á vef Stoða.

Fyrir samrunann átti Stoðir 29% hlut í Refresco. Stærstu eigendur Stoða eru Glitnir, Landsbankinn og Arion banki.