Hannes Smárason, forstjóri FL Group, sagði á afkomufundi félagsins í morgun að samruni Geysis Green Energy og Reykjavíkur Energy skipti ekki sköpum fyrir Geysi, sem FL Group á 43,1% hlut í. Hann sagði að Geysir yrði eftir sem áður leiðandi í útflutningi á jarðvarmaþekkingu á Íslandi. Verðmæti hlutarins í Geysi var endurmetið til hækkunar í bókhaldi FL Group á þriðja fjórðungi ársins, og segir Hannes að sú hækkun hafi verið íhaldssöm.