Samsett hlutfall VÍS var 94,9% í apríl en það var 117,6% í apríl 2018. Samsett hlutfall það sem af er ári er 100,4% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 98,1%.

Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í apríl var 2,5% en ávöxtun frá áramótum er 6,5%.

VÍS greiddi viðskiptavinum sínum um 1,5 milljarð króna í tjónabætur í apríl og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 5,7 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.