Samsett hlutfall var 94,8% í júní en það var 97,0% í júní 2018. Samsett hlutfall það sem af er ári er 99,1% og samsett hlutfall síðustu 12 mánaða er 96,8%. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Samsett hlutfall er kennitala sem mælir arðsemi vátryggingareksturs og er samanlagður tjónakostnaður, rekstrarkostnaður og endurtryggingakostnaður sem hlutfall af iðgjöldum. Ef hlutfallið er yfir 100% skilar vátryggingareksturinn ekki hagnaði.

Ávöxtun fjárfestingaeigna VÍS í júní var 0,2% en ávöxtun frá áramótum er 8,2%. VÍS greiddi viðskiptavinum sínum rúmlega 1,1 milljarð króna í tjónabætur í júní og hefur greitt viðskiptavinum tæplega 8,2 milljarða króna í tjónabætur það sem af er ári.