Landflutningar-Samskip fengu á dögunum afhenta 8 nýjar Mercedes-Benz Actros dráttarbifreiðar fyrir vöruflutningavagna. Bifreiðarnar munu leysa aðrar eldri af hólmi hjá Landflutningum-Samskipa. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaupin.

Páll Halldór Halldórsson, í atvinnubíladeild Öskju, segir að Mercedes-Benz Actros hafi reynst hafa mjög vel, enda vandaðir og vel útbúnir bílar með mikla flutningsgetu. ,,Þetta eru traustir og vinsælir atvinnubílar enda hagkvæmir í rekstri og með lága bilanatíðni,“ segir Páll Halldór.