Samskip voru útnefnd sem Menntafyrirtæki ársins 2014 á Menntadegi atvinnulífsins sem var haldinn í dag. Ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var útnefnt Menntasproti ársins 2014.

Ragnheiður Elín Árnadóttir - iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins en SA, SAF, SI, SVÞ, SF, LÍÚ, SFF og Samorka og stóðu að deginum þar sem menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu var í kastljósinu.