Samskip hafnar alfarið ásökunum sem settar hafa verið fram af hálfu hollenska stéttarfélagsins FNV og fjallað var um í frétt EenVandaag Broadcast í Hollandi . Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samskipum.

Ríkisútvarpið tók í dag upp fréttina um það að stærsta verkalýðsfélag Hollands hafi kært Samskip í Hollandi fyrir illa meðferð á vöruflutningabílstjórum frá Austur-Evrópu.

„Starfsemi Samskipa er að fullu í samræmi við lög í Hollandi og Evrópureglugerðir. Félagið leggur áherslu á að bílstjórum sé greitt í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir og gerir ráð fyrir því að undirverktakar sem fyrir félagið starfa geri slíkt hið sama. Séu undirverktaka uppvísir að öðru er samningum við þá rift eins og gerst hefur í tvígang á s.l. ári,“ segir í tilkynningunni.

Einnig segir þar að mati Samskipa sé það stjórnmálamanna að finna lausnir á flóknum málum sem koma til vegna hagsmunaárekstra sem snúa að frjálsu flæði fólks og þjónustu milli Evrópulanda annars vegar og mismunandi launastigs og ríkidæmis landanna hins vegar.

Samskip bendir einnig á að hollenska Umhverfis- og samgöngueftirlitið (ILENT) stöðu mála hjá Samskipum. „Skýrsla ILENT, sem Samskip sýndu fullt samstarf, var jákvæð að langmestu leyti. Tvö minniháttar mál komu upp þar sem annað sneri að glötuðum gögnum úr flutningabíl sem var í leigu annars staðar frá og svo misskilnings um hver væri skráður vinnuveitandi hollensks bílstjóra sem ráðinn hafði verið.

Vegna þessara mála greiddu Samskip sekt upp á 18.000 evrur alls, eða sem svarar til tveggja milljóna króna. Hvorki málin, né sektir, snúa að misnotkun á bílstjórum. Þá fengu Samskip engar aðrar viðvaranir eða sektir en  eiga í stöðugum og uppbyggilegum samskiptum við ILENT,“ er tekið fram í tilkynningunni.