Samskip hafa eignast helmingshlut í fyrirtækinu Bayside Food Terminal í Bayside í Kanada sem ræður yfir 12.000 tonna frysti- og kæligeymslu. Í tilkynningu félagsins kemur fram að með þessari aðstöðu getur félagið nú boðið viðskiptavinum sínum upp á enn víðtækari þjónustu á heimsvísu í frystivöru- og flutningsmiðlun.

Bayside Food Terminal er í New Brunswick á austurströnd Kanada, rétt við bandarísku landamærin. Fyrirtækið annast einnig skipaafgreiðslu og löndunarþjónustu á svæðinu og uppfyllir allar reglugerðir kanadíska matvælaeftirlitsins.

Samskip hafa starfrækt söluskrifstofur í Norður - Ameríku um nokkurt skeið en frysti- og kæligeymslan í Bayside er sú fyrsta á vegum félagsins í þessum heimshluta. Fyrir eru Samskip með frysti- og kæligeymslur í Rotterdam og IJmuiden í Hollandi, í Álasundi í Noregi, Kollafirði í Færeyjum ásamt frystigeymslu félagsins í Reykjavík.

"Ég er mjög ánægður með að við skulum nú hafa fengið Bayside Food Terminal í okkar raðir því margir viðskiptavina okkar hafa sett fram óskir um að við kæmum upp kæli- og frystigeymslu á austurströnd Kanada," segir Johan Kloosterboer, framkvæmdastjóri yfir frystigeymslustarfsemi Samskipa í tilkynningu. "Ég hlakka til að geta boðið þessum viðskiptavinum upp á þjónustu okkar á þessu markaðssvæði og vinna að því að auka og bæta hana enn frekar."